09.06.2023 16:04

Sumarnámskeið Brimfaxa og Arctic horses

Skráning er hafin á sumarnámskeið Arctic horses og Brimfaxa.

Byrjað að skrá á eftirfarandi og bætum svo við ef eftirspurnin er mikil:

12-16 júní eftir hádegi (mánudagurinn frá 12:30-15:00 hinir 13:00 -15:30)

19-23 júní fyrir hádegi 9:30-12:00

26-30 júní fyrir hádegi

3-7 júlí eftir hádegi

10-14 júli eftir hádegi

31 -4 ágúst eftir hádegi

8-11 ágúst (4dagar) fyrir hádegi

14-18 ágúst eftir hádegi

Endilega hafa samband í 848-0143 ef það eru einhverjar spurningar.

14.12.2022 20:39

Litlu jól

 

16.11.2022 21:57

Lítill fugl

 

Lítill fugl spæjaði í vetrarstarfið hjá æskulýðsnefndinni.

Atkvæðagreiðsla er í gangi hjá krökkunum á æskulýðsfacebook síðunni en kosið er um:

-Reiðtúr og gista á Völlunum

-Vorhátíð

-Uppskeruhátíð

-Bling bling beisli hjá Siggu Pjé

-Sleepover

Það eru líka komin drög að dagskrá en í boði verður m.a.

Hinni Sig - fyrirlestur, jólaviðburður, páskabingó, krakkafjör, nuddnámskeið, 

kíló og sparkó á móti fullorðna fólkinu, kerruferð, heimsókn í annað félag, 

XC keppni, óvissuferð, skemmtiferð og fl.

 

 

09.11.2022 22:13

Stjórn og nefndir

 

 

Aðalfundur Brimfaxa var haldin 8. nóvember 2022 kl. 20:00

Ný stjórn og nýjar nefndir má finna hér að ofan undir

hestamannafélagið Brimfaxi.

27.10.2022 21:43

Frístundir

 

Brimfaxi er komin á vefsíðuna fristundir.is.

Vefurinn er frístundavefur sem geymir upplýsingar um frístundastarf

fyrir alla aldurshópa sem í boði er á öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum.

Fristundir.is 

 

23.10.2022 21:47

Fyrirlestur um holdafar

 

 

Amalía Lilja Kristleifsdóttir dýralæknir mun halda fræðsluerindi

um holdafar föstudaginn 28 okt. kl. 19:00

Þeir sem ætla að koma mega senda póst á [email protected]

og láta vita í síðasta lagi miðvikud. 26. okt.

18.10.2022 22:20

Hæfileikamótun LH

Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun veturinn 2022-2023.

 Hæfileikamótun er fyrir krakka á aldrinum 14-17 ára og á síðasta ári voru 29 knapar valdir af yfirþjálfara Hæfileikamótunar.

Tekið er á móti umsóknum í hæfileikamótun LH 2020-2023 á vef LH.

Umsóknarfrestur er 25. október 2022

SMELLA HÉR: Umsóknum skal skilað á sérstöku eyðublaði á vefsíðu LH 

 

17.10.2022 22:07

Félagsjakkar

 

 

FÉLAGSJAKKAR!

Þá erum við loksins komin með tilboð í félagsjakka. Við fáum að velja um þrjá jakka frá Icewear.

(Það má kaupa sér fleiri en einn jakka)

Því miður getum við ekki fengið jakkana til okkar og haft mátunardag þannig að það þarf að fara í verslun Icewear til þess að skoða og máta.

Við stefnum á að leggja inn pöntun mánudaginn 7.nóvember þannig að það þyrftu allir að vera búnir að máta fyrir þann dag.

Það má síðan senda á [email protected] hvernig jakka á að panta og í hvaða stærð.

Allar nánari upplýsingar má fá hjá Sylvíu Sól. 

17.10.2022 20:01

Aðalfundur 8. nóv.

Aðalfundur verður haldinn 8. nóvember 2022

Venjuleg aðalfundarstörf.

 

10.10.2022 20:54

Tamning/þjálfun

Tek að mér tamningu/þjálfun á einum til tveimur hestum í vetur.

Get ekki tekið að mér frumtamningu.

Ég er 16 ára og stunda nám í FS.

Hef keppnisreynslu og er með 1-3 stig í knapamerkjum ásamt því að taka keppnisnámskeið hjá Þórarni Eymundssyni.

Endilega hafið samband við mig í síma 837-4713

Karin Thelma Bernarðsdóttir

08.10.2022 21:35

Fyrirlestur - Hinrik Sigurðsson

 

Hinrik Sigurðsson, reiðkennari og þjálfari ÍSÍ með hugarþjálfun sem sérsvið

verður með fyrirlestur miðvikudaginn 23 nóvember 2022 kl. 18:00

https://hinriksigurdsson.com/

 

08.10.2022 21:24

Beitarhólf

 

Búið er að opna stóra beitarhólfið.

Þeir sem vilja setja hross í hólfið er 

bent á að hafa samband við Styrmi

í síma 824-2413

 

19.07.2022 22:17

Patricia sigraði fjórganginn

 

 

Patricia Hobi var sigursæl á áhugamannamóti Íslands sem haldið var á Akranesi um sl. helgi

Patricia sigraði fjórganginn V5 á Hljómi frá Hofsstöðum og varð í 

4 sæti í fjórgangi V2 á Sigga Sæm frá Holtsmúla.

 

 

12.07.2022 22:06

Senuþjófar á Landsmóti

 

Brimfaxafélagar voru senuþjófar á Landsmóti!

Halldóra Rún og Klara voru í auglýsingu fyrir appið horseday sem sýnt var á Landsmóti og Alendis tv.

Appið er ómissandi fyrir hestamenn og er fáanlegt á horseday.com/is og kostar ekkert. 

 

Flettingar í dag: 248
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 908
Gestir í gær: 42
Samtals flettingar: 461379
Samtals gestir: 47013
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 09:28:48