|
|
 |
 |
Á þessu fyrsta starfsári Brimfaxa mun mótast létt og skemmtileg dagskrá sem bætt verður við jafn óðum. Reiknað er með að einn viðburður verði að jafnaði í hverjum mánuði á vegum félagsins. Hér fyrir neðan eru næstu viðburðir:
Vigdísarvallarferð
Hin hefðbundna Vigdísarvallarferð verður farin helgina 16. til 18 júlí. Nánari upplýsingar veita Gauji í Vík og Raggi Eðvarðs.
Sumarferð Brimfaxa
Helgina 23. til 25. verður sumarferð Brimfaxa. í þessari fyrstu ferð félagsins verður farið upp á tjaldsvæðið við Álfaskeið við Syðra-Langholt. Þar geta Brimfaxafélagar slegið upp tjaldbúðum, sameiginlegt grill verður og síðan verður farið í reiðtúra um þessa fallegu sveit frá föstudegi til sunnudags.
Hægt verður að fá leigða aðstöðu fyrir hrossin á Syðra-Langholti og þeir sem þurfa á feiri góðum reiðhestum að halda geta fengið leigða hesta hjá Simma á Syðra-Langholti. Nánari upplýsingar gefur Palli Jói.
|
|
 |
|