í ágúst 2009 var boðin út bygging reiðhallar í Grindavík sem er 26x70 m að stærð. Sex tilboð bárust í verkið og var lægstbjóðandi Grindin í Grindavík. Reiðhöllin sem boðin var út er sambærileg við reiðhöll Mána á Mánagrund að allri stærð og gerð. Boðin var út fullbúin reiðhöll með fullfrágengni lóð og félagsaðstöðu. Gert var ráð fyrir í útboðsgögnum að minnka umfang verksins í samræmi við söfnum á framkvæmdafé til byggingarinnar, ef til þess kemur sökum fjárskorts.

Reiðhöllin verður staðsett í nýju hesthúsahverfi ofan Suðurstrandar við Kóngsholt þar sem að framtíðarsvæði Brimfaxamanna verður. Þar er gert ráð fyrir góðum reiðleiðum, fjölmörgum lóðum fyrir myndarlega hesthúsabyggð, keppnisvelli, skeiðvelli og landi til sumarbeitar.

Gengið hefur vel að safna styrkjum til þess að fjármagna bygginguna og hefur Grindavíkurbær verið einstaklega rausnarlegur í þeim efnum ásamt Landbúnaðarráðuneytinu.

Eins og staðan er í júlí 2010 þá er búið að safna framkvæmdarfé sem nemur u.þ.b. fullbúni reiðhöll sem er 24x60 m að stærð og skiptist styrkveitingarnar þannig:
Grindavíkurbær: 50 milljónir
Landbúnaðar- og Sjávarútvegsráðuneytið: 7 milljónir
Ýmsir aðilar: 10 milljónir

Framkvæmdir mun hefjast um leið og lóð verður klár fyrir reiðhöllina og verða þá einnig byggð við reiðhöllina tvö áföst hesthús er rúma 44 -56 hesta hvort hús. Reiknað er með að lóðin verði klár í september - október 2010.

Hér eru teikningar af reiðhöll og hesthúsum:
Útlit reiðhöll og hesthús
Útlit reiðhöll og hesthús
Grunnmynd hesthúsa
Kaffistofa
Hesthús
Brimfaxi - hestamannafélag Grindavíkur
© 2009 Uppsetning og hönnun Hýsir.is